16.6.2007 | 00:46
10 ára og yndislegur dagur
Dagurinn í dag leið sem eitt ævintýri hjá 10 ára prinsinum Karli Liljendal. (10 ára í gær þann 14/6). Fullt af hressum krökkum í heimsókn og leikja og ævintýraplanið gekk allt upp eins og hann hafði óskað sér. Legg hér inn til varðveislu nokkrar myndir frá deginum.
Félagarnir mættir og tilbúnir að ráðleggja um i-poddinn ...
Hlustað á mússík ... Svo kom að smá Pizzu veislu
Kári stóri bróðir sá um að skipuleggja og stjórna ratleiknum sem tók heldur betur á með hlaupum, leit að vísbendingum og meiri hlaupum ...
Hér var skipt í stráka og stelpulið ...
Fyrsta vísbending fundin og allir á sprett
Þangað sem Mogginn kemur!? ... jú póstkassinn auðvitað ...
það kostaði alvöru spretthlaup
Leitað og leitað ... Já og hendur úr báðum liðum ...
Og hvað haldið þið ... hér er sigurliðið að loknum æsispennandi leik þar sem sekúndubrot réði úrslitum ...
Heiða sýndi listir sínar við mikinn fögnuð ...
Þá var röðin komin að fótboltanum. Afmælisbarnið var dómari, og þótti strangur á köflum. Það var ekkert gefið eftir frekar en í landsleik ...
Kári á siglingu en blöffar Jakob sem tók flugið ...
Klappstýrurnar héldu til í snúrustaurnum og "litla húsinu" á víxl
Svo tók við rólegri tími, haldnir einkatónleikar og farið í leiki ...
Pakkarnir !? .. nei þeir gleymdust ekki, það var bara svo spennandi að geyma þá fram á miðjan dag fannst afmælisbarninu.
Nú var klukkan farin að ganga fimm og kominn tími á afmæliskaffið ...
Fjörið og gleðin höfðu fyrir löngu yfirunnið einhverja feimni sem kannski örlaði á fyrsta klukkutímann.
Það var spjallað um alla heima og geyma og hlegið og hlegið ...
Hvað hér var í gangi er einkamál og verður ekki skýrt frekar, en Jakob tók hraustlega til matar síns
Óðinn hugsi .... humm ..
Áður en nokkur vissi af var svo líka kominn kvöldmatur. Hér eru þrír herramenn eftir hjá þeim bræðrum í gistingu og stendur svo afmælið fram á næsta dag hjá þeim ...
Ballið í fyrramálið aftur ....
Líklega eins gott að fara að sofa líka núna ef maður á að ná að vakna með þessum gleðipinnum ..
Athugasemdir
Almáttugur hvað þetta eru yndislegar myndir. Náttúran, börnin... sveitasælan. Til hamingju með strákinn og vel heppnað afmæli.
Jóna Á. Gísladóttir, 16.6.2007 kl. 10:16
Takk kærlega Jóna :) það er eins og að fá góða heimsókn þegar þú kemur með hlýju kommentin þín á síðuna mína ...
Hólmgeir Karlsson, 16.6.2007 kl. 10:58
Innilega til hamingju með báða strákana þína!! Skemmtilegt að við eigum syni sem eiga sama afmælisdaginn... þinn akkurat tvöfalt eldri en minn í dag :) eigið góðan dag! -en ekki gleyma því að í dag er einnig merkisdagur fyrir okkur öll.
Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 12:20
Takk Kleópatra :) .. já skemmtileg tilviljun. Vona að þið eigi yndislegan dag. Á morgun verður minn ekki lengur tvöfalt eldri, því þinn mun eldast hlutfallslega 50% meira í nótt en minn, he he ... pældu í því
Hólmgeir Karlsson, 19.6.2007 kl. 18:54
hehe :) góð pæling ég er svo farin að gera mér grein fyrir því hvað lífið er stutt og áður en ég veit af verða börnin mín orðin fullorðin ... vá hvað ég vona að Guð gefi mér það að ég eigi eftir að njóta allra stundanna með þeim með þakklæti og kærleika
Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 22.6.2007 kl. 14:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.