Lélegur fréttaflutningur

Hvenær kemur að því að farið verður að fjalla um verð á innlendum matvörum og verslun hér í landinu af einhverri sanngirni. Það er bara ekki hægt að slíta verð á matvöru úr samhengi við allt annað. Ætli þeir sem gera þessa úttekt væru til í að þiggja Spænsk laun fyrir... ? til dæmis ..

Ef bera á saman lífskjör fólks milli landa þá verður að skoða hverjar ráðstöfunartekjur þess eru. Síðan má velta fyrir sér hversu stór hluti tekna fer í að kaupa þessi tilteknu matvæli. Með því fæst miklu raunhæfari samanburður en með því að senda "einhverja fréttamenn" út í búð til að versla.

Á íslandi fara 13,58% af heildarútgjöldum heimilanna til kaupa á mat, en á spáni 16,00%.
þannig að matarverðið er hlutfallslega hærra á Spáni.

Hlutfallstölurnar frá Spáni eru að vísu frá 2003, en okkar jan 2007.
Hér var hlutfallið 15,5% jan 2003 og hefur því lækkað skarpt síðan.

Læt hér fylgja "tengil" á Spænsku neysluverðsvísitöluna. Treysti ykkur til að finna þá Íslensku á vefnum Cool

http://www.laposte-export-solutions.co.uk/observez.php/spain/consumption-trend.html

 


mbl.is Matarkarfan 170% dýrari á Íslandi en á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

,,Ætli þeir sem gera þessa úttekt væru til í að þiggja Spænsk laun fyrir... ?"

Hehe, góður punktur  held að þetta sé hárrétt hjá þér. Kveðja. Ólafur.

Ólafur (IP-tala skráð) 30.1.2007 kl. 13:43

2 identicon

Mikið rétt Hólmgeir, mikið rétt!  Geisladiskar eru 50% dýrari á Íslandi en í Bretlandi, gallabuxur eru sjálfsagt 170% dýrari á Íslandi en í Bandaríkjunum..... en þetta er víst allt landbúnaðinum að kenna, eða það gæti maður haldið miðað við fréttaflutninginn. 

Hilmar Vilberg Gylfason (IP-tala skráð) 30.1.2007 kl. 14:04

3 identicon

Frábær pæling hjá þér eins og allar hinar.

Kveðja frá Hansa og co.

Hans (IP-tala skráð) 30.1.2007 kl. 14:32

4 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Þakka viðbrögð Ólafur og Hilmar. Já mér finnst sjálfum þessi gamla klisja að kenna landbúnaðinum um vera orðin ansi lúin :)

Hólmgeir Karlsson, 30.1.2007 kl. 15:10

5 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Takk Hansi :) og bið að heilsa í Danmörkina

Hólmgeir Karlsson, 30.1.2007 kl. 19:57

6 identicon

 Já þetta eru góðir punktar hjá þér nú ertu farinn að skrifa eitthvað af viti he he  

Dúnna (IP-tala skráð) 31.1.2007 kl. 11:37

7 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Takk fyrir innlitið Dúnna,....  "eitthvað af viti" úbs! já enda er ég með flensu núna  ...  he he, en verð bráðum svona  á ný

Hólmgeir Karlsson, 31.1.2007 kl. 16:31

8 Smámynd: Margrét Ingibjörg Lindquist

láttu þér batna...

Margrét Ingibjörg Lindquist, 2.2.2007 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband