Á blúsnámskeiði með KK

Hinn eini sanni KK hélt tónleika í Laugarborg, tónlistarhúsinu okkar í sveitinni í gærkvöldi. Kempan brást ekki frekar en fyrri daginn og náði upp ótrúlegri stemmingu í salnum og hélt fólki við efnið alla tónleikana.Picture 048 

En það sem var svo ennþá meira gaman var að stór hluti áheyrendanna voru krakkar úr tónlistarskólanum, en 25 þeirra höfðu verið valin til að sitja blúsnámskeið með kappanum alla helgina.

<< hér er Karl minn annar yngsti þáttakandinn með hetjunni.

Þetta fór svo allt af stað í morgun og byrjaði með fyrirlestri KK um blús, en síðan tóku við þrotlausar æfingar og leiðsögn í allan dag sem hann og tónlistarkennararnir sáu um. Búið var að skipta hópnum upp í 5 hljómsveitir sem síðan eiga að halda tónleika í tónlistarhúsinu á morgun og þá ætlar KK sjálfur að spila með hljómsveitunum. Picture 004

Það var svo sannarlega líf og fjör þegar ég kíkti við stuttu fyrir lok æfinganna í dag.

Hér má sjá bandið sem Karl var að æfa með >>>

Í annarri stofu var Kári minn á fullu að blúsa með öðru nýstofnuðu blúsbandi og þegar ég kom í gættina var eitt af lögunum hans KK á fullum snúning

Picture 032

 

<<< Kári og bandið hans

Picture 039

 

 

 

 

Það var ótrúlega gaman að fylgjast með þessu því ekkert af þessum krökkum hefur spilað saman áður, þó öll séu í tónlistarskólanum. Í lok dags var hver af hljómsveitunum 5 komin með 2 eða 3 æfð lög.

Lokaæfingar verða svo í fyrramálið fyrir tónleikana sem verða haldnir seinnipartinn.

Frábært framtak hjá Tónlistarskólanum og KK :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

En gaman fyrir guttana. Og þig reyndar líka . Verður spennandi að heyra hvernig til tekst með tónleikana.

Jóna Á. Gísladóttir, 14.10.2007 kl. 11:12

2 Smámynd: Margrét Ingibjörg Lindquist

gaman að heyra...það er svo gott fyrir þessa ungu tónlistamenn að fá pepp... væri gaman að fá að heyra.. 

Ritknús.. 

Margrét Ingibjörg Lindquist, 14.10.2007 kl. 12:58

3 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Var að koma af lokaæfingu, en tónleikarnir verða kl 15:00 í Laugarborg. Þetta var orðið ótrúlega flott hjá krökkunum og KK brosandi út að eyrum.
Þar sem ég er sjálfskipaður ljósmyndari og film-maker er ég búinn að mynda þau í bak og fyrir á lokaæfingunum og ætla svo að festa tónlekana í heild sinni á myndband á eftir.
Ég á því örugglega eftir að lauma einhverjum völdum klippum á netið :)

Hólmgeir Karlsson, 14.10.2007 kl. 14:12

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

KK eryndislegur náungi, sem gerir alltaf hjartans lyst, sem hann tekur sér fyrir hendur. Ég nýt þeirra forréttinda að þekkja hann þótt ég hafi ekki hitt hann lengi. Það er í  honum eldur sem kveikir í öllum í kringum hann. Svo umgengst hann börn sem jafnoka og talar aldrei niður til enins eins og "fullorðinna" er einatt háttur.  Til hamingju með strákaskottin. Þú ert súperpabbi.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.10.2007 kl. 17:12

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Afsakaðu innsláttarvillurnar.  Gleymi stundum próförkinni.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.10.2007 kl. 17:14

6 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Takk Jón Steinar :)  

Já hann KK er svo sannarlega yndislegur karakter og það er búið að vera ótrúlega gaman að fylgjast með honum vinna með krökkunum.
Það var eins og hann ætti stóran hluta af hópnum strax eftir fyrri daginn og á tónleikunum átti hann þau öll skuldlaust. Og það sem hann er búinn að kenna þeim á stuttum tíma og brjóta niður alla frægðarmúra og sviðsskrekk.

Hólmgeir Karlsson, 14.10.2007 kl. 22:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband