Ljóð og lag í stað ferðasögu .....

Picture 056Þegar ég ætlaði að fara að blogga örlitla ferðasögu um viku ferð okkar feðganna til Svíþjóðar áttaði ég mig á því að teknar höfðu verið tæplega 250 myndir í ferðinni af ævintýrum sem tekur mánuð að endursegja. Ég ákvað því að slá þessu aðeins á frest. Kannski skrifa ég bara um þetta kaflaskipt og tek einn dag í einu, he he ... Tounge

Þess í stað ákvað ég að vera pínu djarfur og setja á bloggið mitt lag og ljóð sem kom til mín nær fullskapað eitt kvöld og lýsir vel því hvað þessir "ormar" eru að gera mikið fyrir mig og gefa mér mikið. Þar sem ég er hvorki skáld né tónlistarmaður, aðeins fiktari af lífi og sál, bið ég ykkur kæru bloggvinir að taka viljann fyrir verkið Joyful ...

 

They Treate me like the Prince of Wales

They treate me like the prince of Wales

they treate me like a God,

but sometimes they treate me like I’ve done something bad.

 

I want to know, I want to feel

their fairs and sacrifies,

but I will never live their lives like mine

 

My love for them, my care for them

is bigger than a part,

and always like the sunny side of my heart.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Svakalega er gaman að heyra röddina þína Hólmgeir.  Fallegt ljóð og lag. Til hamingju með það. Gerir það extra gott að vita að þu sért að syngja til ormanna þinna. Þú lofar að gera eitthvað við þetta!?

Jóna Á. Gísladóttir, 24.8.2007 kl. 23:34

2 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

OMG ... you make me nervus girls  ... Jóna þegar þú ert búinn að gefa út 3 bækur skal ég íhuga "one single" he he ... og Magna  ég fékk "andabrjóst" við að lesa kommentið þitt. You are the most beautifule blogger friends one can imagin ...

Hólmgeir Karlsson, 25.8.2007 kl. 00:07

3 Smámynd: Margrét Ingibjörg Lindquist

Maður veit ekki hvað maður á að segja eftir þessum gyðum hér á undan... Mér fannst lagið og textinn yndislega ljúfur og hlíjar manni um hjartarætur... 

Þú stendur þig vel í alla staði... 

Margrét Ingibjörg Lindquist, 25.8.2007 kl. 10:53

4 Smámynd: Margrét Ingibjörg Lindquist

Gyðjum... úff.. hvað ég get verið hölt á lykklaborðinu...

Margrét Ingibjörg Lindquist, 25.8.2007 kl. 10:54

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hólmgeir ekki bíða eftir bókunum. Það líst mér ekki á. Þú ættir að taka þetta lag lengra. Útsetja. jafnvel bæta við chorus. Setja á myspace.... eitthvað! Svo hef ég nú grun um að þú eigir eitthvað meira á lager

Jóna Á. Gísladóttir, 25.8.2007 kl. 10:59

6 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Takk kærlega Magga :) ... þú fellur nú bara vel í hópinn ...

humm Jóna  ... I will think about it ..   Já ég luma á einhverju fleiru en það er bara "my personal thoughts and fealings" og ég allt of hlédrægur til að gera eitthvað með það  ...

Hólmgeir Karlsson, 25.8.2007 kl. 11:51

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þaðan koma bestu verkin. Frá hjartanu.

Jóna Á. Gísladóttir, 25.8.2007 kl. 11:55

8 Smámynd: Júlíus  Garðar Júlíusson

Sæll Hólmgeir...gott að vera kominn aftur í bloggheima og gott að vita að bloggvinir eru klárir á línunni. Þú kemur bara næst á Fiskidaginn mikla, þér er fyrirgefið...ég var ekki einmanna þar. Lagið er ljúft og mörg skáldin og margir tónlistarmennirnir ná ekki að senda frá sér svona gott efni beint frá hjartanu...ég er stoltur að eiga þig sem bloggvin.

Júlíus Garðar Júlíusson, 25.8.2007 kl. 15:24

9 identicon

Just love it :) Do something about it

Móa (IP-tala skráð) 1.9.2007 kl. 00:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband